Velkominn á Sturlungaslóð í Skagafirði

Á 13. öld, sem hefur verið kölluð Sturlungaöld, börðust nokkrar valdaættir um yfirráð á Íslandi. Í Skagafirði fóru Ásbirningar með völdin. Sturlungar réðu á Vesturlandi og austanverðu Norðurlandi. Ásbirningar voru því á miðju áhrifasvæði þeirra. Haukdælir sem stjórnuðu flestu á Suðurlandi, ásamt Oddaverjum, voru bandamenn Ásbirninga. Sturlungar vildu ná völdum í Skagafirði og þar urðu mestu átök þessarar aldar. Víðinesbardagi var 1208, Örlygsstaðabardagi 1238, Haugsnesbardagi var 1246 og Flugumýrarbrenna 1253.

Á Sturlungaslóð er félag ferðaþjónustuaðila og áhugasamra einstaklinga í Skagafirði. Markmið félagsins er að gera sögu Sturlungaaldar í héraðinu sýnilega. Félagið hefur unnið að því að merkja helstu sögustaði með upplýsingaskiltum sem greina frá atburðum á viðkomandi stað auk þess að bæta aðgengi að stöðunum. Það hefur einnig sett upp bekki og borð á nokkrum staðanna svo ferðamenn megi setjast niður, snæða nesti sitt og njóta útsýnis og náttúru. Félagið býður upp á nokkrar skipulagðar gönguferðir  hvert sumar en auk þess geta hópar haft samband við félagið og fengið leiðsögn að eigin ósk. Þá stendur félagið fyrir sögudegi í ágúst hvert ár.

Hér er kort af Skagafirði, og leiðsögn um ferðir, göngustíga og fleira.

Ef þú vilt fá nánari upplýsingar hafðu þá samband á sturlungaslod@sturlungaslod.is eða hjá Upplýsingamiðstöðinni í Varmahlíð

Á döfinni

Meira
  • SSF